Forsíða

Félag starfsmanna stjórnarráðsins

Saga FSS
Lög félagsins
Kjarasamningur
Fréttir
Orlofshús
Sjóðir
Aðrir vefir

 

Orlofshús í Flatey

Orlofshús á Akureyri Orlofshús í Flatey Orlofshús í Hrísholti Orlofshús í Munaðarnesi

Flatey

Húsið er kallað Ráðagerði. Í því er 1 svefnherbergi með hjónarúmi á neðri hæðinni og á svefnlofti eru 4 rúmstæði og slatti af dýnum. Sængur og koddar eru fyrir 8 manns.

Í húsinu er útvarpstæki með segulbandi og sjónvarp með innbyggðu myndbandstæki.

Í eldhúsi eru gaseldavél, ísskápur með fystihólfi og önnur rafmagnstæki og borðbúnaður fyrir 12 manns.

Á pallinum er kolagrill.

Til að komast í Flatey keyrir maður í Stykkishólm og siglir með ferjunni Baldri út í eyju. Baldur fer 2 ferðir á dag yfir sumartímann frá Stykkishólmi að Brjánslæk á Barðaströnd með viðkomu í Flatey. Sjá tímaáætlun og verð á heimasíðu Sæferða Ferjan Baldur

 

Á bryggjunni í Stykkishólmi setur maður farangur sinn í gám sem merktur er Flatey, sá gámur er síðan settur á bryggjuna í Flatey og maður getur í rólegheitum fundið sinn farangur en skipið heldur áfram á næsta áfangastað.

 

 

 


Félag starfsmanna stjórnarráðsins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, sími: 545-9548, Fax: 562-3068