20. júní 2011
Nýr kjarasamningur FSS samþykktur í atkvæðagreiðslu.
Félag
starfsmanna stjórnarráðsins hefur látið fara fram rafræna
atkvæðagreiðslu um kjarasamning sem undirritaður var 8. júní 2011 með
fyrirvara um samþykki félagsmanna.
Á kjörskrá voru
242. Atkvæði greiddu 128.
Já sögðu 119 eða
93,0%
Nei sögðu 7 eða
5,5%
Skila auðu 2 eða
1,5%
Samningurinn var
því samþykktur.
Niðurstaða atkvæðagreiðslu um nýjan kjarasamning
2011
9. júní 2011
Nýr kjarasamningur FSS undirritaður.
Samninganefnd Félags starfsmanna stjórnarráðsins undirritaði nýjan
kjarasamning við ríkið síðdegis í gær með fyrirvara um samþykki
félagsmanna.
Samningurinn verður kynntur trúnaðarmönnum á fundi föstudaginn 10. júní en
þeir munu síðan kynna samninginn félagsmönnum sínum á hverjum vinnustað.
Atkvæðagreiðsla um samninginn verður rafræn og munu allir félagsmenn fá
tölvupóst um atkvæðagreiðsluna og hvernig eigi að bera sig að við kosningu
um kjarasamninginn.
Sjá nýr kjarasamningur við ríkið.
3.
júlí 2009
Nýr kjarasamningur
Félag
starfsmanna stjórnarráðsins hefur samþykkt nýjan kjarasamning við
ríkið, en það er samkomulag um breytingar og framlengingu á fyrri
samningi frá 2008. Samkomulagið gildir til 30. nóvember 2010.
Sjá
meðfylgjandi skjal.
6. júní 2008
Kjarasamningurinn
samþykktur
Nú er lokið
atkvæðagreiðslu um kjarasamninginn sem undirritaður var 25. maí 2008
með fyrirvara um samþykki félagsmanna.
Í þetta sinn var
ákveðið að atkvæðagreiðslan skyldi vera rafræn og var samið við
fyrirtækið Outcome um framkvæmdina.
Niðurstöður
liggja nú fyrir og eru þessar.
Kosningaþátttaka
var 56,14%
Á kjörskrá voru
285
Atkvæði greiddu
160
Já sögðu 136 eða
85%
Nei sögðu 12 eða
7,5%
Skila
auðu 12 eða 7,5%

26. maí 2008
Í gær 25. maí 2008 voru undirritaðir kjarasamningar milli aðildarfélaga
BSRB sem höfðu lausa samninga og samninganefndar ríkisins.
Helstu
atriði samningsins eru þessi:
Samningurinn gildir til 31. mars 2009
Allir taxtar í launatöflunni hækka um 20.300 kr. frá 1. maí 2008
Desemberuppbót 2008 verður 44.100 (hækkar um 2.300 frá 2007)
Réttur til fjarvista vegna veikinda barna verður 12 dagar á ári í stað 10
Í bókunum með samningnum kemur m.a. eftirfarandi fram:
Tryggt áframhaldandi fjármagn til menntasjóða BSRB
Hækkun á framlagi atvinnurekanda í Foreldra- og styrktarsjóð BSRB
Varðandi kynningu á samningnum:
Sjá nýr kjarasamningur við ríkið 2008
Nánari kynning og upplýsingar verða
gefnar á aðalfundi FSS sem haldinn verður á fimmtudaginn
29. maí nk. kl. 16:15 í fundarsal menntamálaráðuneytisins
félagmenn geta kynnt sér samninginn hér á síðunni, en
kosið verður um hann eins fljótt og hægt er
|