Forsíđa

Félag starfsmanna stjórnarráđsins

Saga FSS
Lög félagsins
Kjarasamningur
Fréttir
Orlofshús
Sjóđir
Ađrir vefir

 

Um FSS

Stjórn félagsins Trúnađarmenn
 

Saga FSS

Félag starfsmanna stjórnarráđsins var stofnađ međ samţykkt fyrstu laga félagsins 13. apríl 1943.

Félagiđ var stofnađ af starfsmönnum stjórnarráđsins til ţess ađ auka kynningu milli starfsfólks og vinna ađ húsnćđismálum, ferđalögum og skemmtistarfsemi, tekiđ er fram í fyrstu lögunum ađ félagiđ hafi engin afskipti af kaupgjaldsmálum, en ţađ breyttist fjótlega.

Fyrsta stjórn var skipuđ svo:

Baldur Möller formađur
Sigurđur Ólason ritari
Svanhildur Ólafsdóttir gjaldkeri
og til vara:

Gústav A. Jónsson, Jón Gunnlaugsson og
Kristmundur Jónsson.
 

Fyrsta verkefni félagsins var ađ skipuleggja skemmtiferđ í Ţjórsárdal, einnig var á fyrsta fundi stjórnar kosin byggingamálanefnd til ađ stofna samtök á međal félagsmanna um ađ koma sér upp húsum.

Fyrstu árin var verkefni félagsins ađ efla félagsstarf međal starfsmanna stjórnarráđsins međal annars međ berjast fyrir ţví ađ komiđ vćri upp kaffistofu fyrir strarfsmenn ţar vćri einnig hćgt ađ koma saman og spilađ bridge eđa tefla. Ţegar hún var til sá félagiđ um rekstur matstofu fyrir starfsmenn fram á níunda áratuginn. Einnig stóđ félagiđ fyrir vetrarskemmtun eđa árshátíđ og efndi til sumarferđa félagsmanna. Lengi var til skáksveit félagsins og keppti hún á ýmsum skákmótum ríkisstarfsmanna.

Í byrjun árs 1951 eru gerđar ţćr lagabreytingar ađ félagiđ skuli vinna ađ kjaramálum.

Seinna ţetta sama ár kemur Ólafur Björnsson formađur Bandalags starfsmanna ríkis og bćja á félagsfund og kynnir fyrirhugađa inngöngu félagsins. Seinna ţađ sama ár er samţykkt ađ ganga í BSRB og kosnir voru 3 fulltrúar á ţing bandalagsins en ţađ voru: Sigurđur Ólason, Hannes Jónsson og Kristján Thorlacius.

Lög um kjarasamninga opinberra starfsmanna sem sett voru 1973 kváđu á um ţađ ađ hvert starfsmannafélag gćti einungis veriđ ađili ađ einum heildarsamtökum, annađ hvort BSRB eđa BHM. Ţetta var til ţess ađ háskólamenntađir starfsmenn stjórnarráđsins sögđu sig úr félaginu. Eftir ţađ sinnti félagiđ kjaramálum sinna félagsmanna en komiđ var á fót starfsmannaráđi beggja félaganna sem sá m.a.um rekstur matstofunnar í Arnarhvoli. Einnig hafa félögin haft góđa samvinnu um umsjón međ árshátíđ stjórnarráđsins og nýlega var tekinn upp sá góđi siđur ađ bjóđa eftirlaunaţegum stjórnarráđsins til kaffisamsćtis einu sinni á ári.

1993 var FSS 50 ára og var haldiđ upp á ţađ međ veislu í Borgartúni 6, til hennar var bođiđ félagsmönnum, öđrum starfsmönnum stjórnarráđsins og einnig ţeim starfsmönnum sem komnir voru á eftirlaun.  Ţessi veisla var fjölsótt og ţótti takast vel.

Félagiđ hefur ekki skrifstofu en byggir upplýsingastreymi sitt til félagsmanna á trúnađarmönnum sem eru í hverju ráđuneyti. Nú er unniđ ađ ţví ađ koma félaginu upp heimasíđu til ađ bćta upplýsingastreymi til félagsmanna.

 

Orlofshús

Eitt af stćrstu málum félagins hefir veriđ rekstur orlofshúsa. Fyrsta húsiđ sem félagiđ fékk til ađ leigja félagsmönnum sínum var í orlofshúsabyggđ BSRB í Munađarnesi og var ţađ tekiđ í notkun 1975.  Húsiđ var mikiđ notađ enda byggt í fögru umhverfi Borgarfjarđar.

Nokkru síđar var fengin lóđ í Flatey á Breiđafirđi til ađ byggja á sumarhús, ţađ hús var tekiđ í notkun 1980. Stjórn félagsins hefur veriđ framsýn ţegar ţessi ákvörđun var tekin ţví ţótt ekki hafi alltaf veriđ mikil ađsókn ađ húsinu gegnum árin eru ţađ orđiđ mjög vinsćlt síđustu árin og ekki margir sem eiga athvart í ţessari fallegu eyju.

Nćsta var keypt rađhúsíbúđ á Akureyri viđ Lönguhlíđ 5E. Stjórn félagsins hugđi ađ ţá íbúđ vćri hćgt ađ leigja félagsmönnum ekki einungis yfir sumartímann heldur allt áriđ. Fyrstu árin var ekki mikil ásókn í vetrarleigu en ţađ hefur mikiđ breyst og er húsiđ nokkuđ vel nýtt yfir vetrartímann auk ţess sem sumarvikurnar eru eftirsóttar.

Nýjasta orlofshús félagsins er nýtt og glćsilegt hús sem byggt var fyrir félagiđ í landi Efri-Reykja í Biskupstungum. Húsiđ var tekiđ í notkun sumariđ 2000 og síđan ţá veriđ nýtt af félagsmönnum allar sumarvikur og svo til allar helgar yfir vetrartímann.

Ađsókn ađ orlofshúsinu í Munađarnesi dalađi mikiđ á seinni hluta tíunda áratugarins og áriđ 2000 var ţess fariđ á leit viđ BSRB ađ ţađ leysti húsiđ til sín og var ţađ gert.

 

Kjaramál

Eftir ađ FSS varđ ađili ađ BSRB voru kjarasamningar á höndum heildarsamtakanna. Međ öđrum ađildarfélögum BSRB tók FSS ţátt í fyrsta allsherjarverkfalli opinberra starfsmanna 1977, tveggja daga verkfalli 1978 og síđan verkfalli 1984. Međ breytingu á lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna 1986 var afnuminn réttur allra starfsmanna stjórnarráđsins til ađ fara í verkfall.

1986 fengu opinber stéttarfélög sjálfstćđan samningsrétt međ breytingum á lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna. Eftir ţađ hefur FSS gert kjarasamning fyrir sína félagsmenn viđ vinnuveitandann sem er einn ţ.e. samninganefnd ríkisins fyrir hönd fjármálaráđherra. Félagiđ hefur haft samvinnu međ öđrum ađildarfélögum BSRB í stćrri málum svo sem mótun ţjóđarsáttarsamninganna sem gerđir voru 1990 og kjarasamninga sem gerđir voru 1997 en í ţeim var tekiđ í notkun nýtt launakerfi. Í kjölfar ţeirra samninga var mikil vinna lögđ í gerđ ađlögunarsamninga í hverju ráđuneyti og komu trúnađarmenn félagsins ţar ađ verki međ stjórn félagsins.

 

 


Félag starfsmanna stjórnarráđsins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, sími: 545-9548, Fax: 562-3068, Senda póst