Forsíða

Félag starfsmanna stjórnarráðsins

Saga FSS
Lög félagsins
Kjarasamningur
Fréttir
Orlofshús
Sjóðir
Aðrir vefir

 

Fréttir
 

20. júní 2011
Nýr kjarasamningur FSS samþykktur í atkvæðagreiðslu.

Félag starfsmanna stjórnarráðsins hefur látið fara fram rafræna atkvæðagreiðslu um kjarasamning sem undirritaður var 8. júní 2011 með fyrirvara um samþykki félagsmanna.

Á kjörskrá voru 242.  Atkvæði greiddu 128.

Já sögðu 119 eða 93,0%

Nei sögðu 7 eða 5,5%

Skila auðu 2 eða 1,5%

Samningurinn var því samþykktur.

 

Niðurstaða atkvæðagreiðslu um nýjan kjarasamning 2011

 

9. júní 2011
Nýr kjarasamningur FSS undirritaður.

Samninganefnd Félags starfsmanna stjórnarráðsins undirritaði nýjan kjarasamning við ríkið síðdegis í gær með fyrirvara um samþykki félagsmanna. 

Samningurinn verður kynntur trúnaðarmönnum á fundi föstudaginn 10. júní en þeir munu síðan kynna samninginn félagsmönnum sínum á hverjum vinnustað.

Atkvæðagreiðsla um samninginn verður rafræn og munu allir félagsmenn fá tölvupóst um atkvæðagreiðsluna og hvernig eigi að bera sig að við kosningu um kjarasamninginn.

Sjá nýr kjarasamningur 2011

 

11. ágúst 2009
Kynning á kjarasamningi FSS og fjármálaráðherra 3. júlí 2009.

Undirritað var samkomulag um breytingu og framlengingu á kjarasamningi FSS og fjármálaráðherra 3. júlí sl.  Atkvæðagreiðsla um samninginn mun fara fram rafrænt, en félagsmenn munu fá sendan tölvupóst og geta greitt atkævði sitt þannig á einfaldan hátt.

Sjá - Nýr kjarasamningur við ríkið 2009

 

28. maí 2009
Aðalfundur Félags starfsmanna stjórnarráðsins, 28. maí n.k.

Aðalfundur FSS verður haldinn fimmtudaginn 28. maí 2009, kl. 16:15, í Borgartúni 6, salur á 1. hæð.

Skýrsla stjórnar í glærusýningu frá aðalfundinum 28. maí 2009

 

26. maí 2009
Nýir valkostir í orlofsmálum félaga í FSS

Nokkrir nýir valkostir bjóðast nú félagsmönnum okkar í sumar, þar má nefna; Veiðikortið, Útilegukortið og áfram verður boðið upp á afsláttarmiða hjá Edduhótelum víðs vegar um landið.
Sjá meðfylgjandi auglýsingu með upplýsingum um verð o.fl.

 

Auglýsing um veiðikort, útilegukort og greiðslumiða Edduhótela

 

30. apríl 2009
Orlofshús og orlofsíbúðir FSS

FSS hefur nú eignast hús í Munaðarnesi að nýju, þetta er hús nr. 19 og stendur í brekkunni fyrir ofan þjónustumiðstöðina.

Úthlutað hefur verið í öll orlofshús FSS í sumar en lausar vikur verða auglýstar hér á síðunni eftir því sem til fellur.

 

26. maí 2009
Kaffiboð á Grand Hóteli 25. mars 2009

Hið árlega kaffiboði fyrir fyrrverandi starfsmenn stjórnarráðsins og þá sem enn starfa í stjórnarráðinu og náð hafa 65 ára aldri, var haldið á Grand Hóteli 25. mars sl. og var vel sótt að vanda. Það eru Félag starfsmanna Stjórnarráðsins og Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins sem standa sameiginlega að kaffiboðinu.

 

1. september 2008
Leigutíma lokið í Kaupmannahöfn

Síðastliðið sumar, þ.e. í ágúst 2007 tók FSS á leigu íbúð á besta stað við Amaliegade 13 í Kaupmannahöfn.  Leigutíminn var til eins árs og honum lauk núna 31. ágúst 2008.

 

25. ágúst 2008
Auglýsing um vetrarleigu á orlofshúsum FSS

Stjórn FSS auglýsir eftir umsóknum félagsmanna sinna um dvöl í orlofshúsum félagsins í Hrísholti og Akureyri fyrir haustönn 2008.  Sjá auglýsingu og umsóknareyðublöð á síðu FSS um orlofshús.

 

24. júní 2008
Stéttarfélagsmiðar á Edduhótelin

Nýr valkostur í orlofsmálum, Hótel Edda býður stéttarfélögum afslátt af gistingu gegn greiðslumiðum.

 

6. júní 2008
Kjarasamningurinn
samþykktur

Nú er lokið atkvæðagreiðslu um kjarasamninginn sem undirritaður var 25. maí 2008 með fyrirvara um samþykki félagsmanna.

Í þetta sinn var ákveðið að atkvæðagreiðslan skyldi vera rafræn og var samið við fyrirtækið Outcome um framkvæmdina.

 

Niðurstöður liggja nú fyrir og eru þessar.

 

Kosningaþátttaka var 56,14%

Á kjörskrá voru 285

Atkvæði greiddu 160

 

Já sögðu 136 eða 85%

Nei sögðu 12 eða 7,5%

Skila auðu 12 eða 7,5%

 

Niðurstöður - súlurit

 

 

26. maí 2008
Í gær 25. maí 2008 voru undirritaðir kjarasamningar milli aðildarfélaga BSRB sem höfðu lausa samninga og samninganefndar ríkisins.

Helstu atriði samningsins eru þessi:

Samningurinn gildir til 31. mars 2009
Allir taxtar í launatöflunni hækka um 20.300 kr. frá 1. maí 2008
Desemberuppbót 2008 verður 44.100 (hækkar um 2.300 frá 2007)
Réttur til fjarvista vegna veikinda barna verður 12 dagar á ári í stað 10


Í bókunum með samningnum kemur m.a. eftirfarandi fram:

Tryggt áframhaldandi fjármagn til menntasjóða BSRB
Hækkun á framlagi atvinnurekanda í Foreldra- og styrktarsjóð BSRB


Varðandi kynningu á samningnum:

Sjá nýr kjarasamningur við ríkið 2008

nánari kynning og upplýsingar verða gefnar á aðalfundi FSS sem haldinn verður á fimmtudaginn 29. maí nk. kl. 16:15 í fundarsal menntamálaráðuneytisins
félagmenn geta kynnt sér samninginn hér á síðunni, en kosið verður um hann eins fljótt og hægt er

 

19. maí 2008
Aðalfundur Félags starfsmanna stjórnarráðsins, 29. maí n.k.

Aðalfundur FSS verður haldinn fimmtudaginn 29. maí 2008, kl. 16:15, í fundarsal menntamálaráðuneytisins á 4. hæð, Sölvhólsgötu 4.

 

17. desember 2007
Jólaball fyrir börn og barnabörn starfsmanna stjórnarráðsins, 28. desember n.k.

Jólaball fyrir börn og barnabörn starfsmanna stjórnarráðsins verður haldið í Lionssalnum Lundi, Auðbrekku 25 í Kópavogi þann 28. desember 2007 kl. 16:00 til 18:00.  Miðaverð er kr. 700,-
Innifalið:  Kaffihlaðborð fyrir alla og að auki fyrir börnin, gos og sælgætispoki
Miðar verða seldir við innganginn og einungis tekið við seðlum.

 

8. maí 2007
Aðalfundur Félags starfsmanna stjórnarráðsins

Aðalfundur FSS verður haldinn þriðjudaginn 22. maí 2007, kl. 16:15.
Fundaðstaður er á 4. hæð í menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4.
 

26. mars 2007
Kaffiboð á Grand Hóteli 27. mars 2007

Það er nú orðið að árlegum viðburði að Félag starfsmanna stjórnarráðsins og Félag háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins standi fyrir kaffiboði fyrir fyrrverandi starfsmenn stjórnarráðsins og þá sem enn starfa í stjórnarráðinu og náð hafa 65 ára aldri.
Í ár verður kaffiboðið haldið á Grand Hóteli við Sigtún, þriðjudaginn 27. mars nk. kl. 16:00.

 

28. nóvember 2006
Námskeið á vegum Félagsmálaskóla alþýðu á vorönn

Félagsmálaskóli alþýðu auglýsir námskeið á vorönn 2007.  Meðfylgjandi er linkur á bækling yfir þau námskeið sem í boði verða.  NÁMSKEIÐIN      Félagsmálaskólinn niðurgreiðir námskeiðið um 40%.  Hádegisverður og kaffi er innifalið í námskeiðsgjaldi og gert er ráð fyrir að þátttakendur séu í hádegismat.

Vakin er sérsök athygli á breyttri tímasetningu námskeiða, en nú hefjast þau kl. 10:00 og þeim lýkur kl. 17:00

Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér þau námskeið sem eru í boði og upplýsa aðra talsmenn sem gætu haft áhuga og þörf á að sækja þau. Nánari upplýsingar um námskeiðin er hægt að fá hjá Félagsmálaskóla alþýðu í síma 53 55 636 og á vefsíðu Félagsmálaskólans www.felagsmalaskoli.is.

Skráning fer fram hjá Mími símenntun í síma 580 1800 og í tölvupósti mimir@mimir.is. Einnig er hægt að skrá sig á vefsíðu skólans.   Skráningu lýkur viku fyrir áætlaðan námskeiðsdag hvers námskeiðs.

 

28. nóvember 2006
Starfslokanámskeið BSRB í janúar 2007

BSRB stendur fyrir Starfslokanámskeiði að Grettisgötu 89 í upphafi næsta árs.  Undanfarna vetur hefur bandalagið staðið fyrir starfslokanámskeiðum á höfuðborgarsvæðinu og reynst mikill áhugi fyrir þessum námskeiðum.  Fjöldi fólks hefur sótt námskeiðin og er látið mjög vel af þeim.  Námskeiðið er frítt fyrir alla félaga í aðildarfélögum BSRB og maka þeirra.  Námskeiðið verður haldið dagana 8., 10. og 11. janúar 2007.  Námskeiðið hefst kl. 16:30 þessa daga og lýkur kl. 19:00. Þátttöku þarf að tilkynna á skrifstofu BSRB í síma 525 8300 fyrir 4. janúar 2007.  Einnig er hægt að tilkynna þátttöku á netfangið bsrb@bsrb.is

Sjá nánar um Starfslokanámskeiðið á heimasíðu BSRB 

 

31. október 2006
Starfsumhverfi ríkisstarfsmanna kortlagt

Í nóvember 2006 fer fram viðamikil könnun á starfsumhverfi ríkisstarfsmanna, en hún er samstarfsverkefni fjármálaráðuneytisins, Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands og ParX viðskiptaráðgjafar IBM.

Könnunin mun kanna viðhorf starfsmanna ríkisins til eigin starfsumhverfis þar sem spurt verður um atriði er varða starfsánægju, starfsþróun, vinnuaðstöðu o.þ.h. Auk þess verða forstöðumenn sérstaklega spurðir um starfsmannamál sinna stofnana.

Hér er kjörið tækifæri fyrir starfsmenn ríkisins að koma sjónarmiðum sínum á framfæri um atriði sem varða starfsumhverfi þeirra, stjórnun og aðra þætti sem hafa áhrif á líðan og árangur í starfi. Góð þátttaka þeirra er málið varðar er gífurlega mikilvæg til að niðurstöðurnar verði vel marktækar og vonast aðstandendur könnunarinnar til að starfsmenn ríkisins bregðist vel við þegar spurningalistinn berst þeim. Ráðgert er að leggja könnunina fyrir 6. - 17. nóvember nk.

Nánari upplýsingar um könnunina eru á forsíðu vefs fjármálaráðuneytisins, www.fjarmalaraduneyti.is, undir „áhugavert efni“.

Sjá einnig: Kynningarbréf til stéttarfélaga og heildarsamtaka

 

2. maí 2006
Aðalfundur FSS, 18. maí 2006

Aðalfundur Félags starfsmanna stjórnarráðsins verður haldinn í menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4. á fimmtudaginn 18. maí nk. klukkan 16:15.

 

7. apríl 2006
Stofnanasamningur undirritaður

Í dag 7. apríl 2006, skrifaði samstarfsnefnd FSS og ráðuneytanna undir stofnanasamning á grundvelli kjarasamnings frá 13. mars 2005, ásamt bókun sem var undirrituð með honum.

   
   
   

 


Félag starfsmanna stjórnarráðsins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, sími: 545-9548, Fax: 562-3068, Senda póst